Síðast uppfært: 24. apríl 2026

Skilmálar

Hér má lesa skilmála um notkun á GISKÓ. Ef misræmi er á milli tungumála gildir íslenska útgáfan af þessu skjali.

01

Leikurinn

GISKÓ er ókeypis leikur sem snýst um að giska á niðurstöður í HM 2026. GISKÓ er ekki veðmálasíða eða fjárhættuspil. Þú verður að vera 13 ára eða eldri til að spila.

02

Aðgangurinn þinn

Þú mátt aðeins eiga einn aðgang. Þú berð sjálf/ur ábyrgð á að halda lykilorðinu þínu öruggu og á allri virkni sem á sér stað undir þínum aðgangi. Sendu okkur línu ef þú heldur að einhver annar hafi komist inn á aðganginn þinn.

03

Vinningurinn

Sá sem hafnar í efsta sæti á stigatöflunni undir lok móts vinnur 100.000 kr.. Vinningurinn verður greiddur út af rekstraraðila GISKÓ. Til að fá vinninginn greiddan þarf íslenskan bankareikning (nema um annað sé samið) og sigurvegarinn verður að framvísa gildum skilríkjum með mynd til að staðfesta löglegt nafn og kennitölu.

Ef sigurvegarinn staðfestir ekki þessar upplýsingar innan 14 daga frá tilkynningu, fellur vinningurinn niður og færist sjálfkrafa á næsta löglega spilara á stigatöflunni. Engar undantekningar eða áfrýjanir.

04

Bann við svindli

Það er stranglega bannað að vera með marga aðganga, deila aðgöngum eða samræma gisk. Þú mátt ekki nota vélmenni (bots), skriftur, eða sjálfvirkni til að spila. Ef komist er að því að aðgangar séu tengdir verður öllum slíkum aðgöngum eytt úr leiknum — þar með talið aðgangi vinningshafa ef hann á í hlut — og vinningurinn færist á næsta mann.

05

Efni frá notendum

Þú átt það efni sem þú setur inn (t.d. færslur, athugasemdir og texta á prófíl). Með því að birta það veitir þú GISKÓ leyfi til að hýsa og birta efnið innan leiksins. Bannað er að áreita aðra, nota hatursorðræðu, þykjast vera annar, birta ólöglegt efni eða ruslpóst. Við getum fjarlægt efni og lokað aðgöngum án viðvörunar ef þessar reglur eru brotnar.

06

Einkaskilaboð

Einkaskilaboð, hópspjöll og deildarspjöll eru einkamál. Við lesum þau ekki af fyrra bragði án ástæðu. Við munum aðeins skoða innihald skilaboða ef við erum að bregðast við ákveðinni kvörtun um misnotkun eða lögmætri kröfu frá yfirvöldum.

07

Þjónustan

GISKÓ er boðið fram "eins og það er" án ábyrgðar á uppitíma eða nákvæmni. Dagskráin okkar fylgir FIFA; ef þeir breyta einhverju á miðju móti munum við aðlagast eftir bestu getu, en lofum engu. Þar sem leikurinn er ókeypis er heildarábyrgð rekstraraðila gagnvart hverjum notanda takmörkuð við þá upphæð sem sá aðili hefur raunverulega fengið greidda frá GISKÓ (sem er núll fyrir alla nema endanlegan sigurvegara).

08

Persónuvernd

Við söfnum gögnum til að halda leiknum gangandi og koma í veg fyrir svindl. Allar nánari upplýsingar, þar á meðal um geymslutíma gagna, er að finna á /privacy síðunni.

09

Lokun aðgangs

Þú getur eytt aðganginum þínum hvenær sem er inni í appinu. Ef þú eyðir aðganginum á miðju móti afsalar þú þér strax stöðu þinnar í leiknum. Við áskiljum okkur rétt til að frysta eða eyða aðgöngum sem brjóta skilmála GISKÓ.

10

Breytingar

Ef við gerum efnislegar breytingar á þessum skilmálum munum við láta innskráða notendur vita í pósthólfi GISKÓ áður en þær taka gildi.

11

Samskipti

Eitthvað óljóst? Sendu póst á gisko@gisko.is.