Reglur

Hér eru reglur GISKÓ settar niður á aðgengilegan hátt. Giskaðu á allar niðurstöður mótsins, hvort sem það er röðun í riðlana, teikning útsláttartrés eða úrslit einstakra leikja. Ef misræmi er á milli tungumála gildir íslenska útgáfan.

01

Tveir hlutar

Leiknum er skipt í tvo hluta. Mótið í heild sinni nær yfir stóru myndina: röðun riðla, hvaða lið fara áfram í útsláttarkeppnina, og útsláttartréð sjálft. Leikir snýst um að giska á lokatölur í öllum 104 leikjum mótsins.

02

Riðlar og útsláttartré

Fyrst raðar þú þjóðunum í öllum 12 riðlum. 2 efstu liðin fara beint áfram í útsláttarkeppni. Næst giskar þú á hvaða 8 af 12 þjóðum sem höfnuðu í 3. sæti úr riðlaröðun þinni komast áfram í útsláttarkeppnina. Að lokum setur þú upp útsláttartréð eins og það leggur sig miðað við þína riðlaröðun.

Gisk þín fyrir mótið í heild sinni festast 11. júní 2026 kl. 19:00 UTC. Engar breytingar eru leyfðar eftir upphaf mótsins.

03

Stigagjöf fyrir riðlaröðun og útsláttartré

Þú færð stig fyrir hvernig hverju liði gengur í mótinu miðað við hvernig þú giskar. Viðureignirnar sjálfar skipta ekki máli, aðeins það hvort þjóðin komist áfram. Því lengra sem þjóðin kemst, því fleiri stig eru í boði.

Hvernig stig eru veitt:

  • Riðlakeppni1 stig fyrir hvert lið sem þú setur í rétta lokastöðu (hámark 48 stig)
  • 32 liða úrslit2 stig × 32 lið (hámark 64 stig)
  • 16 liða úrslit3 stig × 16 lið (hámark 48 stig)
  • 8 liða úrslit5 stig × 8 lið (hámark 40 stig)
  • Undanúrslit10 stig × 4 lið (hámark 40 stig)
  • Úrslitaleikur20 stig × 2 úrslitalið (hámark 40 stig)
  • Sigurvegari um brons10 stig fyrir að giska á réttan sigurvegara í leiknum um þriðja sætið
  • Heimsmeistari75 stig fyrir að giska á réttan sigurvegara mótsins

Hámarksstig fyrir gisk sem koma að mótinu í heild sinni: 365 stig. Úrslitaleikurinn gefur 20 stig fyrir hvort lið sem þú giskaðir réttilega að kæmust í úrslit — en að giska á réttan heimsmeistara gefur að auki 75 stig. Mikið vægi er því sett á að giska á réttan heimsmeistara.

Dæmi: Þitt gisk er á þann veg að Argentína vinni mótið, og það gerist. Af því þú giskaðir rétt, þá færð þú

  • 2 (32 liða úrslit)
  • 3 (16 liða úrslit)
  • 5 (8 liða úrslit)
  • 10 (undanúrslit)
  • 20 (úrslitaleikur)
  • 75 (meistari)

Samtals eru þetta 115 stig. Ef Argentína dettur út í undanúrslitum færðu samt 2 + 3 + 5 + 10 = 20 stig fyrir árangur Argentínu — en þú missir þá af 20 stigum fyrir úrslitaleikinn og 75 stiga heimsmeistarabónus.

Að komast áfram er óháð viðureignum. Ef þú spáðir að einn af 8 liða úrslitaleikjunum yrði Spánn gegn Portúgal en hann endar á að vera Spánn gegn Japan, færðu samt 5 stig fyrir Spán, vegna þess að þú hafðir giskað því að Spánn næði a.m.k. til 8 liða úrslita.

Gisk þitt á þeim þjóðum sem komast í útsláttarkeppnina úr þriðja sæti hefur einungis áhrif á giskin þín fyrir 32 liða úrslit. Þ.e.a.s. að ef þú giskar á að Spánn komist úr þriðja sæti og haldi áfram í útsláttarkeppnina, og það reynist vera rétt gisk, þá færðu a.m.k. 2 stig fyrir að hafa sett Spán í 32 liða úrslit.

04

Leikir

Eftir því sem líður á mótið giskar þú á lokatölur (t.d. 2–1) í öllum leikjum. Fyrir útsláttarleiki sem gætu farið í framlengingu velur þú líka hvaða lið fer áfram. Lokað verður fyrir gisk á leiki sjálfkrafa við upphaf þeirra.

05

Stigagjöf fyrir leiki

Hver leikur í riðlakeppninni getur gefið allt að 5 stig, sem byggjast á fjórum þáttum:

  • 2 stig fyrir rétt úrslit (lið A sigrar / lið B sigrar / jafntefli).
  • 1 stig fyrir réttan fjölda marka hjá liði A
  • 1 stig fyrir réttan fjölda marka hjá liði B
  • 1 stig fyrir réttan markamun

Í útsláttarkeppninni eru stigin reiknuð miðað við stöðuna eftir 90 mínútur, eða 120 mínútur ef framlenging á sér stað.

Dæmi: Þú spáir að Spánn sigri Japan 21, og leikurinn endar 21. Af því að giskið er fullkomið færðu:

  • 2 (rétt úrslit)
  • 1 (mörk Spánar)
  • 1 (mörk Japans)
  • 1 (markamunur)

Samtals 5 stig — hámarksstig í einum leik. Ef leikurinn hefði endað 31 fengir þú enn 2 stig fyrir rétt úrslit og 1 stig fyrir mörk Japans, en þú myndir missa af 2 stigum fyrir mörk Spánar og markamun og enda með 3 stig alls.

06

Hirðfíflið

Hirðfíflið tvöfaldar stigin þín úr einum leik (×2). Þú hefur sex hirðfífl til umráða á mótinu:

  • 1., 2. og 3. umferð riðlakeppninnar
  • 32-liða úrslit
  • 16-liða úrslit
  • 8-liða úrslit

Fyrir hverja umferð getur þú valið einn ákveðinn leik til að beita hirðfíflinu á. Hirðfíflið þitt telst ekki notað fyrr en sá tiltekni leikur hefst. Þangað til geturðu fært hirðfíflið á hvaða leik sem er í sömu umferð sem er ekki byrjaður. Ef leikurinn sem þú valdir hefst geturðu ekki beitt hirðfíflinu á annan leik í sömu umferð. Ef þú gleymir að beita hirðfíflinu fyrir umferð, þá missirðu afnot af hirðfíflinu fyrir þá tilteknu umferð.

Dæmi: Þú setur hirðfíflið þitt á leik Spánar gegn Japan og spáir 21. Leikurinn endar 21 — sem myndi að venju gefa 5 stig, en hirðfíflið tvöfaldar allt:

  • 4 (rétt úrslit ×2)
  • 2 (mörk Spánar ×2)
  • 2 (mörk Japans ×2)
  • 2 (markamunur ×2)

Samtals 10 stig. Ef giskið hefði verið 31, hefði hirðfíflið skilað 6 stigum.

07

Hvenær lokar fyrir gisk

Til upprifjunar, þá lokast fyrir gisk á þessum tímum:

  • Mótið í heild sinni: 11. júní 2026 kl. 19:00 UTC
  • Einstakir leikir: Við upphaf hvers leiks
  • Hirðfífl: Þegar nákvæmlega sá leikur sem þú valdir hefst

Allar lokanir giska eru endanlegar, þannig hafðu auga með tímanum og mundu að giska!

08

Deildir

Þú getur stofnað eða tekið þátt í lokuðum og opnum deildum. Sama gisk gildir sjálfkrafa fyrir stigatöfluna og allar deildir sem þú ert í.

09

Leikprýði

Einn aðgangur á mann. Margir aðgangar eða tilraunir til að svindla á kerfinu geta leitt til banns. Giskið þitt er alveg lokað öðrum þar til hver leikur hefst, en þér er auðvitað frjálst að deila giski með öðrum ef þig langar.