Tveir hlutar
Leiknum er skipt í tvo hluta. Mótið í heild sinni nær yfir stóru myndina: röðun riðla, hvaða lið fara áfram í útsláttarkeppnina, og útsláttartréð sjálft. Leikir snýst um að giska á lokatölur í öllum 104 leikjum mótsins.
Hér eru reglur GISKÓ settar niður á aðgengilegan hátt. Giskaðu á allar niðurstöður mótsins, hvort sem það er röðun í riðlana, teikning útsláttartrés eða úrslit einstakra leikja. Ef misræmi er á milli tungumála gildir íslenska útgáfan.
Leiknum er skipt í tvo hluta. Mótið í heild sinni nær yfir stóru myndina: röðun riðla, hvaða lið fara áfram í útsláttarkeppnina, og útsláttartréð sjálft. Leikir snýst um að giska á lokatölur í öllum 104 leikjum mótsins.
Aðalverðlaun GISKÓ skiptast á þrjú efstu sætin í heildarstigatöflunni:
Ef stig eru jöfn skiptast verðlaunin samkvæmt jafnteflisreglunum hér að neðan. Deildir ráða sínum eigin verðlaunum sjálfar.
Fyrst raðar þú þjóðunum í öllum 12 riðlum. 2 efstu liðin fara beint áfram í útsláttarkeppni. Næst giskar þú á hvaða 8 af 12 þjóðum sem höfnuðu í 3. sæti úr riðlaröðun þinni komast áfram í útsláttarkeppnina. Að lokum setur þú upp útsláttartréð eins og það leggur sig miðað við þína riðlaröðun.
Gisk þín fyrir mótið í heild sinni festast 11. júní 2026 kl. 19:00 UTC. Engar breytingar eru leyfðar eftir upphaf mótsins.
Þú færð stig fyrir hvernig hverju liði gengur í mótinu miðað við hvernig þú giskar. Viðureignirnar sjálfar skipta ekki máli, aðeins það hvort þjóðin komist áfram. Því lengra sem þjóðin kemst, því fleiri stig eru í boði.
Hvernig stig eru veitt:
Hámarksstig fyrir gisk sem koma að mótinu í heild sinni: 365 stig. Úrslitaleikurinn gefur 20 stig fyrir hvort lið sem þú giskaðir réttilega að kæmust í úrslit — en að giska á réttan heimsmeistara gefur að auki 75 stig. Mikið vægi er því sett á að giska á réttan heimsmeistara.
Dæmi: Þitt gisk er á þann veg að Argentína vinni mótið, og það gerist. Af því þú giskaðir rétt, þá færð þú
Samtals eru þetta 115 stig. Ef Argentína dettur út í undanúrslitum færðu samt 2 + 3 + 5 + 10 = 20 stig fyrir árangur Argentínu — en þú missir þá af 20 stigum fyrir úrslitaleikinn og 75 stiga heimsmeistarabónus.
Að komast áfram er óháð viðureignum. Ef þú spáðir að einn af 8 liða úrslitaleikjunum yrði Spánn gegn Portúgal en hann endar á að vera Spánn gegn Japan, færðu samt 5 stig fyrir Spán, vegna þess að þú hafðir giskað því að Spánn næði a.m.k. til 8 liða úrslita.
Gisk þitt á þeim þjóðum sem komast í útsláttarkeppnina úr þriðja sæti hefur einungis áhrif á giskin þín fyrir 32 liða úrslit. Þ.e.a.s. að ef þú giskar á að Spánn komist úr þriðja sæti og haldi áfram í útsláttarkeppnina, og það reynist vera rétt gisk, þá færðu a.m.k. 2 stig fyrir að hafa sett Spán í 32 liða úrslit.
Eftir því sem líður á mótið giskar þú á lokatölur (t.d. 2–1) í öllum leikjum. Í útsláttarkeppninni er giskað á stöðuna eftir framlengingu (120 mín.) ef hún á sér stað — vítaspyrnur teljast ekki með, svo jafntefli er gilt gisk. Lokað verður fyrir gisk á leiki sjálfkrafa við upphaf þeirra.
Hver leikur í riðlakeppninni getur gefið allt að 5 stig, sem byggjast á fjórum þáttum:
Í útsláttarkeppninni eru stigin reiknuð miðað við stöðuna eftir 90 mínútur, eða 120 mínútur ef framlenging á sér stað.
Dæmi: Þú spáir að Spánn sigri Japan 2–1, og leikurinn endar 2–1. Af því að giskið er fullkomið færðu:
Samtals 5 stig — hámarksstig í einum leik. Ef leikurinn hefði endað 3–1 fengir þú enn 2 stig fyrir rétt úrslit og 1 stig fyrir mörk Japans, en þú myndir missa af 2 stigum fyrir mörk Spánar og markamun og enda með 3 stig alls.
Hirðfíflið tvöfaldar stigin þín úr einum leik (×2). Þú hefur sex hirðfífl til umráða á mótinu:
Fyrir hverja umferð getur þú valið einn ákveðinn leik til að beita hirðfíflinu á. Hirðfíflið þitt telst ekki notað fyrr en sá tiltekni leikur hefst. Þangað til geturðu fært hirðfíflið á hvaða leik sem er í sömu umferð sem er ekki byrjaður. Ef leikurinn sem þú valdir hefst geturðu ekki beitt hirðfíflinu á annan leik í sömu umferð. Ef þú gleymir að beita hirðfíflinu fyrir umferð, þá missirðu afnot af hirðfíflinu fyrir þá tilteknu umferð.
Dæmi: Þú setur hirðfíflið þitt á leik Spánar gegn Japan og spáir 2–1. Leikurinn endar 2–1 — sem myndi að venju gefa 5 stig, en hirðfíflið tvöfaldar allt:
Samtals 10 stig. Ef giskið hefði verið 3–1, hefði hirðfíflið skilað 6 stigum.
Til upprifjunar, þá lokast fyrir gisk á þessum tímum:
Allar lokanir giska eru endanlegar, þannig hafðu auga með tímanum og mundu að giska!
Þú getur stofnað eða tekið þátt í lokuðum og opnum deildum. Sama gisk gildir sjálfkrafa fyrir stigatöfluna og allar deildir sem þú ert í.
Ef giskarar eru með jafnmörg stig á einhverjum tímapunkti, ræðst röðin af eftirfarandi atriðum, í þessari röð:
Röðunin hér að ofan gildir um allar stigatöflur í leiknum, líka í deildum. Verðlaunaskiptingin á hins vegar aðeins við um aðalverðlaun GISKÓ — deildir ráða því sjálfar hvort og hvernig þær verðlauna sína giskara.
Einn aðgangur á mann. Margir aðgangar eða tilraunir til að svindla á kerfinu geta leitt til banns. Giskið þitt er alveg lokað öðrum þar til hver leikur hefst, en þér er auðvitað frjálst að deila giski með öðrum ef þig langar.
Þessi leikur er ekki kostaður, studdur, rekinn af eða tengdur Apple Inc. á nokkurn hátt.